Lýsing
Nanolex Pure Shampoo
Pure Shampoo frá Nanolex er endingargóð PH hlutlaus sápa. Nóg er að blanda 20-50ml af sápu út í 10l af vatni. Einnig er hægt að nota froðubyssu en þá þarf 50ml af sápunni út í 450ml af vatni.
Nanolex Insect Remover
Nanolex Insect Remover er alkalískt hreinsiefni sem hreinsar burt öll lífræn óhreinindi eins og skordýr, kítín og frjókorn. Efnið er notað áður en bíllinn er þveginn. Nanolex Insect Remover er gert úr sérstakri blöndu efna sem smjúga inn í óhreinindin og mýkja þau upp þannig að hægt er að fjarlægja þau án þess að valda skemmdum á lakki eða yfirborði.
Nánar um Nanolex Insect Remover
Nanolex SiSplash
SiSplash frá Nanolex virkar samstundis á blautt eða þurrt yfirborð, er einstaklega áhrifaríkt, eykur litadýpt lakksins, veitir framúrskarandi gljáa og vatnsfælu. Nanolex SiSplash er borið sparlega á allan bílinn eftir þvott, á meðan hann er enn blautur. Efnið er síðan skolað af og bíllinn þurrkaður eins og venjulega. Bíllinn þinn verður núna lengur hreinn og næsti þvottur auðveldari.
Nanolex Final Finish
Nanolex Final Finish fjarlægir öll minni óhreinindi, ryk, fingraför og vatnsbletti. Nanolex Final Finish hentar einkar vel til að ná fram fallegri glansáferð eftir að bíllinn hefur verið þveginn. Efnið inniheldur ekkert sílikon og hægt er að nota það á allar gerðir ytri yfirborða, svo sem lakk, felgur, gler og gerviefni.
Nanolex Measuring Cup
Nanolex mæliglasið er tilvalið til að mæla rétt hlutfall þeirra efna sem blanda þarf með vatni.
Nánar um Nanolex Measuring Cup
Microfiber þvottahanski
Hágæða þvottahanski gerður úr ótrúlega mjúku og fíngerðu míkrófíber efni og hentar fullkomlega fyrir alla bíla og alla lakkaða fleti. Míkrófíber þvottahanskinn er frábær. Hans helstu kostir eru afar góð vatnsdrægni og hversu vel hann hentar í þrif en þræðir míkrófíber efnisins gera það að verkum að með hanskanum er einstaklega auðvelt að fjarlægja öll óhreinindi á öruggan hátt.